Sérstök jólablekvinnustofa!
Á þessu námskeiði blekum við í jólalitunum, búum til kort, merkimiða og lítið pakkaskraut á meðan við hlustum á jólalög og njótum jólalegra veitinga.
Engin kunnátta er nauðsynleg, heldur er vinnustofan hugsuð sem stund til að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt og njóta augnabliksins í skapandi og notalegu umhverfi.
Efni og áhöld eru innifalin í þessu námskeiði ásamt léttum veitingum og að sjálfsögðu bleksvörtu úrvals kaffi.
Námskeiðið er haldið í Studio Hraun í Laugardalnum í Reykjavík. Nánari upplýsingar um staðsetningu sendar eftir skráningu. Hámarksfjöldi er einungis 8 nemendur. Námskeiðið er um 2 og hálfur tími.
Námskeið fer aðeins fram ef lágmarksfjölda er náð. Fyllist námskeið ekki getur námskeið fallið niður og í þeim tilfellum munu þau sem þegar eru skráð fá endurgreitt. Hægt er að fá kvittun fyrir námskeiðsgjaldi til að nýta í námsskeiðsstyrki stéttarfélaga og fyrirtækja.
- VILT ÞÚ KOMA MEÐ HÓP?
Sendu mér línu á linda@lindaolafsdottir.com og við finnum tíma fyrir hópinn þinn :)
- ÁTT ÞÚ GJAFABRÉF Á BLEKVINNUSTOFU?
Þú getur notað gjafabréfið þitt með því að fylgjast með á þessari síðu hvenær næstu Blekvinnustofunámskeið eru. Þegar þú sérð námskeið með tímasetningu sem hentar þér, þá einfaldlega sendir þú tölvupóst á netfangið linda@lindaolafsdottir.com og ég tek frá pláss fyrir þig.
Special Holiday Ink Workshop!
Á þessu námskeiði blekum við í jólalitunum, búum til kort, merkimiða og lítið pakkaskraut á meðan við hlustum á jólalög og njótum jólalegra veitinga.
In this class we will use the Christmas colors to paint with, we will breate Christmas Cards, gift tags and little gift decorations while we listen to Christmas song and enjoy seasonal refreshments!
No skills are necessary, the workshop is meant to be an enjoyable moment to learn something new and fun, to allow oneself to be creative in a cozy environment.
Materials and tools are included in this course along with light refreshments and, of course, premium black coffee.
The course is held in Studio Hraun in Laugardalur, Reykjavík. More detailed information about the location will be sent after registration. The maximum number of students is only 8.
A course will only take place if the minimum number of participants is reached. If a course is not filled, the course might be canceled and in those cases, those already registered will be refunded. You can get a receipt for the course fee to be used for study grants.
