*Ath. aðeins örfá portrett í boði - afhent fyrir jól 2026
Persónulegu portrettin eru máluð á hágæða vatnslitapappír í stærð A3 af fólkinu þínu! Þú sendir mér ljósmyndir af fyrirmyndunum sem ég púsla saman og mála í mínum stíl. Hafir þú hugmyndir um bakgrunn eða eitthvað ákveðið sem tengist verkinu þínu, þá er sjálfsagt að koma með óskir.
Þegar persónulegt portrett hefur verið keypt í gegnum vefverslunina, munt þú fá tölvupóst með frekari leiðbeiningum og ósk um að senda teiknaranum fyrirmyndir af viðfangsefninu. Verkið fæst afhent, óinnrammað eða í eikarramma á vinnustofu minni í Laugardalnum.
*Miðað er við að hámarki 6 persónur á mynd. Ef þú vilt mynd með stærri hóp eða mynd málaða í stærri stærð, sendu mér póst á: linda@lindaolafsdottir.com og við finnum út úr þessu.
**Frummyndin er skönnuð inn í góðri upplausn og varðveitt af mér, svo hægt sé að panta eftirprent af henni síðar ef þess er óskað. Kaup á frummyndinni fela ekki í sér rétt til eftirprentunar eða annarrar endurgerðar hennar. Slíkt leyfi þarf að semja um sérstaklega og greiðist fyrir það samkvæmt samkomulagi.